Hugmyndin fæddist fyrir nokkrum árum, en vinnan við hana hófst snemma árs 2008. Vefurinn tók fljótlega á sig mynd og var stefnt á opnun sumarið 2008. Því miður hefur opnunin dregist talsvert og að lokum ákváðum við að setja vefinn í loftið í nóvember 2008, þrátt fyrir að hann væri ekki fullgerður.
Vorið 2009 fórum við í samstarf við STEF og Nova, sem fól í sér að vefurinn greiðir STEF gjöld vegna notkunar á textum/lögum. Nova styrkir vefinn svo hann geti staðið undir STEF gjöldunum og rekstrarkostnaði. Á sama tíma hleyptum við af stokkunum nýrri byltingarkenndri virkni, sem gerir notendum kleift að velja sér lög á vefnum og búa til söngbækur með þeim lögum. Þær eru svo fáanlegar á PDF formi með nokkrum stílsniðum.
Hægt er að ná í stjórnendur vefsins á netfanginu webmaster(hjá)gitargrip.is eða með ‘Hafðu samband’ síðunni sem er aðgengileg í stikunni hér að ofan.